TMiO | Gögn um TMiO

Hannaður sérstaklega fyrir notkun innandyra; þessi loftfesti höggnemi færir afl hinna þekktu ratsjár- og sjónrakningarkerfa Trackman í fyrirferðarlítið, auðuppsett form. Frá boltaflugi til hreyfingar kylfu býður Trackman iO upp á heildstætt safn mæligagna sem hjálpar kylfingum að skilja og bæta alla þætti í leik sínum. 

Gögn um TMiO

  1. Boltafluggögn
    Trackman iO skráir ítarleg gögn um boltaflug strax eftir högg, þar með talið:

    • Boltahraði: Mælir hversu hratt boltinn ferðast eftir að hann yfirgefur höggflötinn.
    • Klifurhorn: Lóðrétt horn sem boltinn tekur af stað í.
    • Klifurstefna: Lárétt horn miðað við marklínu.
    • Spunahraði: Hraðinn sem boltinn snýst á, sem hefur áhrif á flugferil og stöðvunargetu.
    • Spunaás: Halli spuna boltans, sem hefur áhrif á sveigju (drag eða feid).
    • Fluglengd: Lengdin sem boltinn ferðast í loftinu áður en hann lendir.
    • Heildarlengd: Felur í sér fluglengd og rúllu og gefur heildarmynd af lengd höggsins.
    • Height: Flugtoppur boltans.
    • Lendingarhorn: Hornið sem boltinn fellur í við lendingu.
    • Sveigja: Hliðarhreyfing boltans meðan á flugi stendur

  2. Kylfugögn
    Trackman iO veitir einnig ítarlega innsýn í hvernig kylfan hreyfist í gegnum högg:

    • Kylfuhraði: Hraði kylfuhaussins við högg.
    • Áfallshorn: Hvort kylfan er á uppleið eða niðurleið við högg (Núna aðeins tiltækt fyrir dræver, trékylfur og blendinga).
    • Kylfuferill: Sú stefna sem kylfuhausinn hreyfist í miðað við marklínu.
    • Stefna höggflatar: Sú stefna sem höggflöturinn vísar í við högg.
    • Stefna höggflatar við kylfuferil: Mismunur á stefnu höggflatar og kylfuferils, mikilvægt fyrir höggmótun.
    • Raunflái höggflatar: Raunverulegur flái höggflatarins við högg, sem mótast af sveiflunni.
    • Höggpunktur: Hvar á höggfletinum boltinn var sleginn (hæll, tá, miðja)

  3. Púttgögn (valfrjálst). Með réttri uppsetningu getur Trackman iO einnig greint pútt, og boðið upp á gögn á borð við:

    • Klifurstefna: Lárétt horn miðað við marklínu.
    • Boltahraði: Mælir hversu hratt boltinn ferðast eftir að hann yfirgefur höggflötinn.
    • Stefna höggflatar: Sú stefna sem höggflöturinn vísar í við högg.

Fannstu ekki það sem þú varst að leita að?

Leit