Sveifluplan (frá teig að flöt)
-
Skilgreining
- Lóðrétt horn á milli plansins sem myndast af hreyfingu rúmmiðju kylfuhaussins og sjóndeildarhringsins. Þ.e.a.s. sveifluplan er lóðrétt horn á milli jarðar og hringsins sem kylfuhausinn fer eftir á neðri hluta sveiflubogans.
- Í grunninn mælir sveifluplanið hversu bratt eða flatt planið er miðað við lárétta línu og lýsir halla sveiflubogans.
- Sveifluplanið notar þrívíddarstöðu kylfuhaussins frá um það bil hnéhæð í niðursveiflu til hnéhæðar í eftirsveiflu.
-
Notkun sveifluplans
- Styttri, loftmeiri kylfur leiða yfirleitt til þess að sveifluplanið verði hærra (meira lóðrétt) vegna hærri Legu á styttri kylfum.
- Hæð og dýnamísk líkamsstaða kylfings hafa einnig áhrif á sveifluplanið. Dræver er yfirleitt með sveifluplan á bilinu 45–50°.